Úrslit úr golfmótinu á ULM

Golfkeppnin á Unglingalandsmótinu fór fram 31.júlí og 1.ágúst á Hlíðarendavelli á Sauðárkróki. Keppt var í flokkum 11-13 ára sem spiluðu 18 holu punktakeppni án forgjafar og síðan var leikinn 36 holur höggleikur í flokkum 14-15 ára og 16-18 ára.

Keppendur voru 50 í þessum flokkum og náðist góður árangur í flestum flokkum. Hæst ber þó vallarmet sem Ólöf María Einarsdóttir úr GHD/UMSE setti föstudaginn 1. ágúst þegar hún lék á 71 höggi eða á einu höggi undir pari af rauðum teigum. Golfklúbbur Sauðárkróks segir frá þessu.

Úrslitin voru eftirfarandi:

11-13 ára drengir     

1. Lárus Ingi Antonsson - GA/UFA  28 punktar

2. Böðvar Bragi Pálsson - GR/UMSK  22 punktar

3. Björn Viktor Viktorsson - GL/ÍA  21 punktar

11-13 ára stúlkur  

1. Sara María Birgisdóttir - GA/UFA  5 punktar

2. Sara Sigurbjörnsdóttir - GÓ/ÚIF  4 punktar

3. Hildur Heba Einarsdóttir - GSS/UMSS  3 punktar

14-15 ára drengir     

1. Kristján Benedikt Sveinsson - GA/UFA  154 högg

2. Þorgeir Sigurbjörnsson - GÓ/ÚÍF  167 högg

3. Ragnar Már Ríkarðsson - GKJ/Fjölnir  175 högg

14-15 ára stúlkur  

1. Ólöf María Einarsdóttir - GHD/UMSE  156 högg

2. Telma Ösp Einarsdóttir - GSS/UMSS  219 högg

3. Guðrún Fema Sigurbjörnsdóttir - GÓ/ÚÍF  223 högg

16-18 ára drengir  

1. Aðalsteinn Leifsson - GA/UFA  164 högg

2. Jóhannes Guðmundsson - GR/UMSK  164 högg

3. Elvar Ingi Hjartarson - GSS/UMSS  168 högg

16-18 ára stúlkur  

1. Aldís Unnarsdóttir - GSS/UMSS  169 högg

2. Erla Marý Sigurpálsdóttir - GÓ/ÚÍF  226 högg

Fleiri fréttir