Úrslitakeppni 3.deildar byrjar á jafntefli

Úrslitakeppni 3. deildar í knattspyrnu hófst sl. laugardag en þar keppa 8 lið um 2 sæti í 2.deild. Það verður hart barist í öllum leikjunum og sú varð raunin á Grenivík á laugardag þegar Magni tók á móti Tindastól.

Byrjunarlið Tindastóls: Arnar Magnús, Loftur Páll, Bjarki Már, Björn Anton ( Böddi ), Pálmi Þór, Árni Einar, Atli Arnars, Árni Arnars, Aðalsteinn Arnars, Arnar Sig og Ingvi Hrannar.

Það voru ágætar aðstæður á Grenivík, að vísu fremur köld norðanátt en sól. Völlurinn var samur við sig en heimamenn stefna á nýjan völl innan tíðar og það er vel. Aðeins eitt varamannaskýli var á vellinum og það var heimamanna en Tindastólsmenn fengu nokkra plaststóla við hliðarlínuna fyrir sig.

Leikurinn hófs og voru Tindastólsmenn með frumkvæðið í upphafi. Arnar Sig átti skot á markið sem að vísu var auðvelt fyrir markvörð Magna. Magnamenn fóru í sókn og Arnar Magnús varði ágætan skalla frá leikmanni heimamanna. Aðalsteinn átti skot af um 25 metra færi sem fór yfir markið og þannig gekk þetta fram og til baka.

Ibra, sóknarmaður Magna komst í tvö góð færi en varnarmenn Tindastóls sáu við honum. Miðjan var öll dugleg í fyrri hálfleik og það sama má segja um varnarlínuna. Arnar Magnús greip vel inní og Ingvi Hrannar djöflaðist frammi.

Um miðjan fyrri hálfleik fékk Tindastóll hornspyrnu, Árni Arnarson sendi góðan bolta fyrir markið og þar var Björn Anton vel staðsettur og skallaði boltann í netið og kom Tindastóli yfir. Stuttu seinna komst hinn sami Árni í gott færi en markvörður Magna sá við honum og varði vel.

Magni sótti nokkuð undir lok hálfleiksins og fékk nokkrar hornspyrnur í röð án þess að ná að skora, en oft skall hurð nærri hælum.

Í hálfleik var staðan 0-1. Siggi skipti Bödda út en setti Kristinn Aron inná og hann skoraði eftir um það bil 5 mínútur og kom Tindastóli í 0-2 sem var afar vænleg staða.

En Adam var ekki lengi í paradís. Aðeins tveimur mínútum síðar skorar Magni af stuttu færi eftir einhvern misskilning í vörn Tindastóls. Við þetta elfdust heimamenn og komu sér verulega inn í leikinn og nokkrum mínútum síðar ná þeir að jafna leikinn í 2-2.

Á um 70. mínútu brýtur Daniel Badu, miðjumaður Magna illa af sér og tók Árna Arnarson gróflega niður. Tveggja fóta ljót tækling sem verðskuldaði ekkert annað en beint rautt sem góður dómari sýndi honum samstundis.

Arnar Skúli og Guðni komu inná fyrir þá bræður Árna og Atla Arnarsyni.

Hinsvegar breytti þetta ekki miklu um gang leiksins og liðin skiptust á að sækja án þess að ná að skora. Niðurstaðan var því 2-2 jafntefli og því hörkuleikur framundan á Sauðárkróksvelli á þriðjudaginn.

Lið Tindastóls var klárlega sterkari aðilinn í fyrri hálfleik. Hinsvegar komst lið Magna óþarflega mikið inn í leikinn í seinni hálfleik og ljóst að verkefni Tindastóls nk. þriðjudag verður ærið.

Leikmenn Tindastóls áttu ágætan leik og ekki ástæða til að taka einhvern einn leikmann fram fyrir annan. Þó er ljóst að fyrri hálfleikurinn var mun betri en sá síðari og eins staðreynd að Tindastólsmenn hafa spilað mun betur en þeir gerðu í dag. Það býr meira í þessu liði og það verða þeir að sýna á þriðjudaginn.

Fleiri fréttir