Úrslitakeppni stærðfræðikeppninnar
Úrslitakeppni stærðfræðikeppni FNV og 9. bekkja á Norðurlandi vestra fer fram í Bóknámshúsi FNV í dag föstudaginn 29. apríl. Keppendur mættu í hús núna upp úr ellefu og var þá boðið í mat á heimavist skólans. Sjálf keppnin hefst síðan klukkan 12:00.
Gestum er boðið í skoðunarferð um húsnæði skólans kl. 11:30. Keppni lýkur kl. 14:00 og úrslit verða kynnt á Sal skólans kl. 14:45. Keppendum er boðið í kynningu á Fab Lab stofu skólans kl. 14:00-14:45. Fjöldi styrktaraðila stendur að keppninni bæði fyrirtæki og sveitarfélög. Á heimasíðu FNV er greint frá því að allir áhugasamir eru boðnir velkomnir í skólann í dag.