Úrsögn engin áhrif á þátttöku í söngkeppninni

Nemó, Nemendafélag Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki, hefur sagt sig úr Sambandi íslenskra framhaldsskólanema vegna óánægju við undirbúning söngkeppni framhaldsskólanna. Keppnin hefur verið haldin á Akureyri undanfarin ár en nú flyst hún til Reykjavíkur á ný.

Okkur langar bara að koma því á framfæri að úrsögn okkar úr SÍF hefur engin áhrif á þátttöku okkar í sjálfri söngkeppninni og það verða bara allir að vera duglegir að kjósa Möggu og Maríu á netinu og koma þeim áfram,“ segir á facebook-síðu Nemós.

Framleiðslufyrirtækið Sagafilm hefur tekið að sér framkvæmd keppninnar og verður keppnin því með breyttu sniði í ár. Þá munu aðeins 12 atriði keppa til úrslita í aðalkeppninni sem sýnd verður í beinni útsendingu á RÚV.

Í bréfi nemendafélagsins til stjórnar SÍF segir að keppnin eigi að vera skemmtun fyrir nemendur í framhaldsskólum landsins og þannig ætti hún að vera byggð upp. Að fækka atriðum, eins og stendur til að gera, gengur gegn hagsmunum nemenda. Jafnframt segir að ákvarðanataka í kringum söngkeppnina hafi farið fram í lokuðum bakherbergjum og ef breyta eigi viðburði, sem þessum á svo róttækan hátt, verði að gæta þess að allir hagmunaaðilar fái áheyrn.

/Heimild: Rúv.is

 

Fleiri fréttir