Útför sjónvarpað á þrjá staði
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
24.01.2014
kl. 11.23
Komið hefur verið upp búnaði til að sjónvarpa útfararathöfn frá Sauðárkrókskirkju á þrjá staði í senn, það er í sal Fjölbrautaskólans, Safnaðarheimilið og Bifröst. Um að ræða búnað sem hannaður er hjá Fjölnetinu á Sauðárkróki og er sambærilegur búnaði sem notaður hefur verið með góðum árangri í dreifnámi FNV. Verður hann tekinn í notkun á laugardaginn, við útför Önnu Jónu Sigurbjörnsdóttur.
Anna Jóna, sem lést af slysförum þann 12. janúar síðastliðinn, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju á morgun, laugardaginn 25. janúar kl. 14:00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. Nánari upplýsingar um líknarfélögin fást í Blómabúð Sauðárkróks.