Útgáfutónleikar í Blönduóskirkju
Á vef Húna.is er sagt frá því að laugardaginn 31. ágúst nk. klukkan 16 fara fram tónleikar í Blönduóskirkju í tilefni af útgáfu fyrstu plötu hjónanna Hjalta Jónssonar og Láru Sóleyju Jóhannsdóttur. Rómantíkin svífur yfir vötnum á plötunni sem inniheldur tólf lög, íslensk og erlend. Platan heitir einfaldlega Hjalti og Lára. Á tónleikunum koma Hjalti og Lára fram ástamt Einari Erni Jónssyni en hann er bróðir Hjalta.
Eftir að hafa komið saman fram yfir 500 sinnum á síðustu átta árum gefa hjónin Hjalti Jónsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir loks út sína fyrstu plötu í lok ágúst . Útgáfunni verður fagnað með glæsilegum útgáfutónleikum á Húsavík, Akureyri og Blönduósi. Í framhaldi verða útgáfutónleikar víðar um landið. Fyrsta lagið af plötunni, Eina nótt, er þegar komið í spilun á Rás 2 og situr nú í 14. sæti vinsældarlista Rásar 2.
Á plötunni flytja Hjalti og Lára rólegar ballöður í bland við kántrý skotna slagara. Flest lagana hafa þau verið beðin um að flytja við ýmiskonar tilefni og hafa lögin svo fylgt þeim í gegnum árin. Platan var tekin upp í Hofi nú á vordögum og inniheldur hún lögin Ó þú, Heyr mína bæn og Tvær stjörnur. Tvö laganna, Vetrarvinur og Við munum aldrei ganga ein, eru frumsamin fyrir plötuna auk þess sem guðsmennirnir Oddur Bjarni Þorkelsson (Ljótur hálfviti) og Svavar Alfreð Jónsson sömdu nýja íslenska texta við erlend lög. Einvala hópur hljóðfæraleikara spilar ásamt Hjalta og Láru á plötunni en þeir eru Einar Örn Jónsson (Einsi Blö), píanó og harmóníum, Gunnar Illugi Sigurðsson, trommur og Pétur Ingólfsson, kontrabassi. Upptökustjórn annaðist Hrafnkell Sigurðsson og um eftirvinnslu sá Finnur Hákonarson.
Hjalti og Lára hófu að koma fram saman árið 2005. Lára er fiðluleikari að mennt og bakgrunnur hennar er í klassískri tónlist. Þegar að þau kynntust var Hjalti hinsvegar söngvari í akureyrskri þungarokksveit. Þau fundu góðan milliveg og hafa komið fram saman yfir 500 sinnum við ýmiskonar tækifæri. Lára starfar sem fiðluleikari og verkefnastjóri og spilar reglulega með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Cheek Mountain Thief og ýmsum kammerhópum. Hjalti er menntaður sálfræðingur en auk þess hefur hann lagt stund á klassískan söng. Hann starfar sem sálfræðingur við Verkmenntaskólann á Akureyri og hjá Sálfræðiþjónustu Norðurlands.