Útimarkaður við Laxasetrið í sumar

Bæjarráð Blönduósbæjar hefur samþykkt að verja 600 þúsund krónum til uppsetningu útimarkaðar sem verður staðsettur fyrir framan húsnæði Laxaseturs Íslands á Blönduósi. Annar styrkurinn er 300 þúsund krónur sem nemur kostnaði við girðingu og hinn styrkurinn að upphæð 300 þúsund krónur í efniskostnað í eitt hús.

Á fundi Bæjarráðsins var lagt fram erindi Jóns Aðalsteins Sæbjörnssonar fyrir hönd Laxasetursins þar sem hugmyndinni að uppsetningu útimarkaðarins var lýst, en hún varð til í hugmyndasmiðju um eflingu ferðaþjónustu á svæðinu. Leitað er eftir aðkomu Blönduósbæjar við fjármögnun stofnkostnaðar að upphæð 2.190.000 krónur sem felst í efniskostnaði við byggingu smáhýsa, borða og girðingar.

Bæjarráð samþykkti að styrkja verkefnið um 300.000 þúsund krónur sem nemur kostnaði við girðingu og aðrar 300.000 krónur til efniskostnaðar í eitt hús, enda verði húsið eign Blönduósbæjar. Framlögin eru háð því að verkefnin verði unnin sumarið 2014.

Fleiri fréttir