Útsendingar frá Talrásinni fm 93.7 hefjast föstudag
Vegna óviðráðanlegra örsaka náðist ekki að hefja útsendingar í gær vegna bilunar í búnaði sem átti að fara upp til að taka á móti útsendingum frá sendi í Reykjavík. „Unnið er að viðgerð þessa stundina og er planið að sendingar muni hefjast núna á næstkomandi föstudag,“ segir í fréttatilkynningu frá Talrásinni.
Hægt er að hlusta á stöðina ánetinu www.talrasin.com og eða á sjónvarpi símans þangað til.
„Við viljum einnig benda þeim sem búa á Skagafirði að hafa samband ef áhugi er að búa til útvarpsþætti sem miðast við Skagafjörðinn. Áhugasamir geta haft samband í netfangið skagafjordur@talrasin.com á hugasömum auglýsendum er bent á að hafa samband á netfangið augly@talrasin.com,“ segir loks í fréttatilkynningunni.