Útstrikanir hafa ekki áhrif á störf Gunnars Braga
Gunnar Bragi Sveinsson oddviti Framsóknarflokksins í Norðvestur kjördæmi segir það engin áhrif hafa á sín störf þó nafn hans hafi oftast verið strikað út af lista flokksins í nýliðnum alþingiskosningum. Hann segist munu áfram rækja þau störf af heilindum, ábyrgð og eins og samviska hans segir til um.
„Ég hef þurft að bera ábyrgð á óvinsælum ákvörðunum. Ég hef alltaf verið hreinskilinn og væntanlega umdeildur, ætli það skýri þetta ekki án þess að ég ætli nokkuð að hugsa um þetta,“ segir Gunnar sem er sæmilega sáttur með árangur flokksins í kjördæminu. „Við erum ekki langt frá því að vera með "hefðbundið" fylgi ef hægt er að tala um það. Ég er líka ánægður með að við náðum besta árangrinum innan flokksins, það gefur okkur góðan byr. Á landsvísu er fylgið hins vegar alltof lágt og það eru vonbrigði.“
Tengd frétt: Oftast strikað yfir nafn Gunnars Braga