Úttekt gerð á hagkvæmni sameiningar

Á fundi bæjarstjórnar Blönduósbæjar, síðastliðinn þriðjudag, fór Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóri yfir tillögu að vinnulagi hagkvæmnisathugunar vegna sameiningar sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu. Bæjarstjórn samþykkti tillöguna og að Oddur Gunnar Jónsson, sérfræðingur hjá KPMG, verði ráðinn til að gera úttekt á hagkvæmni sameiningar sveitarfélaga í sýslunni. Byggðarsamlag um menningar- og atvinnumál mun annast umsjón með úttektinni.
Í desember á síðasta ári óskaði bæjarstjórn Blönduósbæjar eftir samstarfi við sveitarstjórn Húnavatnshrepps um að unnin yrði úttekt á kostum og göllum þess að sameina sveitarfélögin. Hreppsnefnd Húnavatnshrepps taldi það raunhæfari valkost að skoða sameiningu allra sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu, heldur en sameiningu Húnavatnshrepps og Blönduósbæjar eingöngu. Blönduósbær tók undir sjónarmið sveitarstjórnar Húnavatnshrepps var í framhaldinu leita eftir stuðningi og aðkomu annarra sveitarfélaga í sýslunni um viðræður.

Áður hefur verið reynt að sameina sveitarfélögin
Hugmyndir um sameiningu sveitarfélaganna í Austur-Húnavatnssýslu er ekki ný af nálinni en árið 2005 var kosið um sameiningu Blönduósbæjar, Sveitarfélagsins Skagastrandar, Skagabyggðar og Áshrepps. Mikill meirihluti kjósenda á Blönduósi vildi sameiningu svæðisins í eitt sveitarfélag en kjósendur á Skagaströnd höfnuðu sameiningu með 92 prósentum atkvæða.

Í frétt í Morgunblaðinu þann 11. febrúar síðastliðinn, um sameiningar mál í Austur-Húnavatnssýslu, sagði Jens P. Jensen, sveitarstjóri, Húnavatnshrepps, að sameining kæmi til greina en hann taldi raunhæfara að sameina öll sveitarfélögin í Austur-Húnavatnssýslu.  Ágúst Þór Bragason, forseti bæjarstjórnar Blönduósbæjar, sagði í sömu frétt að sveitarfélögin á svæðinu væru nú þegar að vinna sameiginlega að mörgum málum og því væri eðlilegt að skoða það hvort ekki væri rökrétt að taka skrefið til fulls og sameina svæðið í eitt sveitarfélag.

Adolf H. Berndsen, oddviti á Skagaströnd, lét hafa eftir sig í blaðinu, um afstöðu sína til sameiningar, að aðkoma stjórnvalda væri lykilforsenda fyrir því að hægt væri að sameina svæðið í eitt sveitarfélag. „Hér hefur verið lögð áhersla á nýtingu á orku úr Blönduvirkjun til uppbyggingar atvinnustarfsemi á svæðinu en við höfum átt lítið bakland hjá stjórnvöldum.“ Komi ríkisvaldið að viðræðum um sameiningu og væntingar verði um aðkomu stjórnvalda að frekari atvinnuuppbyggingu telur Adolf að viðhorf til sameiningar gætu orðið annað á Skagaströnd en var árið 2005. „Umræða um sameiningu hefur ekki verið nein eftir kosningarnar 2005 en frá þeim tíma hefur þó samstarf sveitarfélaganna aukist á mörgum sviðum og samstarfið verið gott á milli okkar,“ sagði Adolf.

Húni.is segir frá þessu.

Fleiri fréttir