Útvarpsmessur teknar upp í Blönduóskirkju
Útvarpsmessur úr Húnavatns- og Skagafjarðarprófastdæmi verða teknar uppp í Blönduósskirkju í dag og á morgun. Þeim verður svo útvarpað á Rás 1 á sunnudagsmorgnum í sumar og hefjast þær klukkan 11. Allar upptökurnar fara fram í Blönduóskirkju og er fólki er boðið að koma í kirkjuna og vera við upptökur á messunum. Hér er um hefðbundnar messur er að ræða og hver messa verður sungin í heild án þess að gert verði hlé. Það er betra vegna hljómburðar að fólk sitji á bekkjum og einnig gerir það andrúmsloftið eðlilegra, að því er segir í auglýsingu frá prófasti.
Meðfylgjandi er listi um upptökutíma og útsendingartíma í sumar; presta og organista. Félagar úr kirkjukórum prestakallanna syngja við messurnar.
Föstudagurinn 26. maí.
Klukkan 18:00. Sauðárkróksprestakall. Sr. Sigríður Gunnarsdóttir. Organisti: Rögnvaldur Valbergsson. Útsending: 18. júní.
Klukkan 19:00. Skagastrandarprestakall. Sr. Bryndís Valbjarnardóttir. Organisti: Hugrún Sif Hallgrímsdóttir. Útsending: 25. júní.
Klukkan 20:30. Breiðabólstaðarprestakall. Sr. Magnús Magnússon. Organisti: Pálína Fanney Skúladóttir. Útsending 13. ágúst.
Laugardagurinn 27. maí.
Klukkan 11:00. Glaumbæjarprestakall. Sr. Gísli Gunnarsson. Organisti: Stefán R. Gíslason. Útsending: 9. júlí.
Klukkan 13:00. Hofsóss- og Hólaprestakall. Sr. Halla Rut Stefánsdóttir. Organistar: Anna Kristín Jónsdóttir og Jóhann Bjarnason. Útsending: 16. júlí.
Klukkan 14:30. Miklabæjarprestakall. Sr. Dalla Þórðardóttir. Organistar: Sveinn Árnason og Stefán R. Gíslason. Útsending: 2. júlí.
Klukkan 16. Melstaðarprestakall. Sr. Guðni Þór Ólafsson. Organistar: Pálína Fanney Skúladóttir og Elinborg Sigurgeirsdóttir. Útsending: 27. ágúst.
Klukkan 17:30. Þingeyrarklaustursprestakall. Sr. Sveinbjörn R. Einarsson. Organisti: Eyþór Franzson Wechner. Útsending: 23. júlí.