Væta í kortunum

Eftir frost helgarinnar spáir Veðurstofan suðaustan 10-15 m/s og dálítilli slyddu til hádegis í dag, en snýst síðan í suðvestan 13-20 með éljum og verður hvassast á Ströndum. Hæg sunnanátt og skúrir á morgun með hita frá 0 til 5 stig á morgun.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á þriðjudag:
Suðvestlæg átt, 3-8 m/s og stöku skúr eða slydduél í fyrstu, en snýst í suðaustan 8-13 með rigningu S- og V-til eftir hádegi. Hiti 0 til 7 stig, svalast inn til landsins.

Á miðvikudag:
Suðvestlæg átt, 8-13 m/s og slydda eða rigning með köflum, einkum S- og V-lands. Hiti 0 til 5 stig.

Á fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag:
Suðlæg átt og víða væta, en þurrt að kalla á NA-landi. Hlýtt í veðri.

Fleiri fréttir