Vætusamt næstu daga
Það verður heldur vætusamt næstu daga á Norðurlandi vestra samkvæmt spá Veðurstofu Íslands. Í dag er gert ráð fyrir austan 5-10 m/s og rigningu með köflum á spásvæðinu en hægara síðdegis. Hiti 12 til 18 stig. Suðvestan 5-10 og dálítil væta á morgun. Hiti 10 til 15 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga.
Á laugardag:
Suðvestan 5-13 m/s og súld eða dálítil rigning, en léttir heldur til A-lands. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á NA- og A-landi.
Á sunnudag:
Suðvestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og víða dálítil rigning. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast A-lands.
Á mánudag:
Suðvestanátt og skúrir, en skýjað með köflum og úrkomulítið á NA- og A-landi. Hiti breytist lítið.
Á þriðjudag:
Vestlæg átt, víða skúrir og fremur svalt.
Á miðvikudag og fimmtudag:
Suðlæg átt og vætusamt, einkum S- og V-lands. Milt veður.