Val á manni ársins 2010 í Húnaþingi
Líkt og undanfarin fimm ár ætlar Húnahornið að bjóða lesendum sínum að velja mann ársins í Húnaþingi. Biðla Húnahornsmenn til lesenda að senda inn tilnefningu í gegnum þar til gerðan rafrænan atkvæðaseðil. Hver og einn getur aðeins sent inn eina tilnefningu og er jafnframt óskað eftir ástæðu tilnefningarinnar. Maður ársins í Húnaþingi getur verið einn einstaklingur eða hópur manna.
Valið stendur til miðnættis 18. janúar næstkomandi og verða úrslit kynnt laugardaginn 22. janúar.
Lesendur Húnahornsins völdu fyrir ári síðan Bóthildi Halldórsdóttur frá Blönduósi sem mann ársins 2009 í Húnaþingi.
Þetta er í sjötta sinn sem Húnahornið stendur fyrir vali á manni ársins í Húnaþingi.
Menn ársins síðustu ár eru þessir:
2009: Bóthildur Halldórsdóttir.
2008: Lárus Ægir Guðmundsson.
2007: Rúnar Þór Njálsson.
2006: Lárus B. Jónsson.
2005: Lárus B. Jónsson.
