Val á manni ársins 2012 í Austur-Húnavatnssýslu stendur sem hæst

Á Húna.is stendur yfir val á manni ársins 2012 í Austur-Húnavatnssýslu og hafa lesendur Húnahornsins verið mjög duglegir við að senda inn tilnefningar. Valið stendur til miðnættis annað kvöld eða 23. janúar og verða úrslit kynnt laugardaginn 25. janúar. Maður ársins í Austur-Húnavatnssýslu getur verið einn einstaklingur eða hópur manna.

Líkt og undanfarin sjö ár ætlar Húnahornið að bjóða lesendum sínum að velja mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu og er biðlað til lesenda að senda inn tilnefningu í gegnum þar til gerðan rafrænan atkvæðaseðil. Hver og einn getur aðeins sent inn eina tilnefningu og er jafnframt óskað eftir ástæðu tilnefningarinnar.

Lesendur Húnahornsins völdu fyrir ári síðan Einar Óla Fossdal frá Blönduósi sem mann ársins 2011 í Austur-Húnavatnssýslu.

Sjá nánar á Húni.is

Fleiri fréttir