Valbjörn gegnir stöðu forstjóra HSVE

Heilbrigðisráðherra hefur falið Valbirni Steingrímssyni, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Blönduósi, að gegna stöðu forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja tímabundið þar til fyrirhugaðar sameiningar heilbrigðisstofnana í heilbrigðisumdæmi Suðurlands koma til framkvæmda.

Samkvæmt heimasíðu Velferðarráðuneytisins verður Gunnar K. Gunnarsson, fráfarandi forstjóri HSVE, Valbirni til aðstoðar til að byrja með.

Á Húna.is kemur fram að Valbjörn muni jafnframt gegna stöðu forstjóra HSB og að hann hafi tekið við stjórnartaumunum í HSVE sl. föstudag.

 

Fleiri fréttir