Valdefling í héraði? Opið málþing í tengslum við 20. ársþing SSNV
20. ársþing SSNV verður haldið dagana 12.-13. október nk. í Félagsheimilinu Fellsborg á Skagaströnd. Í tengslum við ársþingið verður haldið opið málþing undir yfirskriftinni: Valdefling í héraði? – Málþing um nýtt hlutverk landshlutasamtaka og svæðasamvinnu sveitarfélaga í opinberri stefnumótun og forgangsröðun.
Framsögur flytja Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, Karl Björnsson framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, Hólmfríður Sveinsdóttir verkefnisstjóri sóknaráætlana landshluta. Hermann Sæmundsson skrifstofustjóri í innanríkisráðuneytinu. Að loknum framsögum fara fram pallborðsumræður.
Málþingið stendur frá kl 14:00-16:30 föstudaginn 12. október. Vakin er sérstök athygli á að málþingið er öllum opið. Skráningu lýkur fimmtudaginn 11. október kl 16:00 og skulu þær berast á netfangið ssnv@ssnv.is.