Valhóll með opið fjárhús í Víðidalstungu
Í tilefni af væntanlegri vorkomu býður Valhóll ehf. til opins fjárhúss í Víðidalstungu á morgun, sunnudaginn 15. apríl, á milli kl. 13 og 17. Forsvarsmenn Valhóls vonast til að sjá sem flesta.
Í tilkynningu frá Valhóli, sem birt var í nýjasta tölublaði Sjónaukans, segir að opið fjárhús sé fyrir alla þá sem hafa áhuga á að kynna sér sauðfjárbúskap í einu stærsta sauðfjárræktarhéraði landsins nú eða bara langar að skoða kindur og jafnvel lömb.