Vantar þig stuðning?

Ráðgjafi frá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins verður á Sauðárkróki fimmtudaginn 23. október. Viðtölin verða á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki. Viðtölin eru í boði bæði fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein, aðstandendur og syrgjendur.
 
Þjónustan er öllum opin, endurgjaldslaust. Við hvetjum einstaklinga í nágranna sveitarfélögunum til að nýta sér einnig þjónustuna.

 

Til að bóka viðtal er hægt að hringja í félagið í síma 461-1470 eða með því að senda póst á kaon@krabb.is

Verkefnið er styrkt af Velunnurum Krabbameinsfélagsins

Fleiri fréttir