Vara við laxi af norskum uppruna

Landssamband veiðifélaga varar við því að núverandi leyfakerfi til að ala lax af norskum uppruna í sjókvíum við strendur landsins verði kollvarpað. Í fréttatilkynningu frá sambandinu segir að yfirlýsingar atvinnuvegaráðherra í fjölmiðlum bendi til þess að nú eigi að láta undan þrýstingi fiskeldismanna og slaka á kröfum í umhverfismálum við leyfisveitingar. „Saga laxeldis við strendur Íslands ætti að vera stjórnvöldum og öðrum viðvörun um þá áhættu sem þessum atvinnuvegi er búin,“ segir í tilkynningunni. 

„Landssambandið minnir á að þegar hrogn voru flutt inn frá Noregi á sínum tíma var gert samkomulag um að lax af norskum uppruna yrði aðeins alinn í eldisstöðvum á landi en ekki settur í sjó. Þetta samkomulag hefur verið þverbrotið og nú virðist eiga að ganga lengra í þeim efnum. Landssamband Veiðifélaga telur fráleitt að hverfa frá því fyrirkomulagi sem nú er við lýði og felur í sér að álits sérfræðinga er aflað þegar Skipulagsstofnun metur hvort umhverfismats er þörf. Það er alrangt sem haldið hefur verið fram að flókið leyfisferli standi laxeldi á Íslandi fyrir þrifum,“ segir í tilkynningu sambandsins en að mati þess er það fyrst og fremst hin miklu og mengandi  áhrif laxeldis  á umhverfið sem gerir það að verkum að nauðsynlegt er að gæta fyllstu varúðar.

Landsamband veiðifélaga hefur óskað eftir fundi með atvinnuvegaráðherra til að ræða þessi mál.

Fleiri fréttir