Varað við flughálku á Norðurlandi vestra
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
27.10.2015
kl. 18.25

Mikil ísing er nú á Norðurlandi vestra og er ástæða til að brýna fyrir ökumönnum að fara varlega. Mynd: KSE.
Á Norðvesturlandi er varað við ísingu á vefsíðu Vegagerðarinnar. Flughált er því frá Hrútafjarðarbotni í Varmahlíð, eins á Þverárfjalli, Skagastrandavegi og frá Hofsós í Ketilás.
Eftir frosthörkur undanfarinna daga fór að rigna í dag og þegar aftur fór að kólna myndaðist mikil ísing.
Vegfarandi sem Feykir heyrði í sagði að á um það bil tíu mínútum hefðu tveir bílar skautað út af þjóðvegi 1 á um 50 km kafla í Vestur-Húnavatnssýslu og endaði annar þeirra á toppnum. Þá myndaðist umferðarteppa við Hvammstangavegamótin fyrir skemmstu.