Varað við hvassviðri norðvest­an­lands

Vindaspá Veðurstofu Íslands fyrir fimmtudagsmorgun kl. 07:00. Mynd/Skjáskot af vedur.is.
Vindaspá Veðurstofu Íslands fyrir fimmtudagsmorgun kl. 07:00. Mynd/Skjáskot af vedur.is.

Bú­ist er við hvassviðri eða stormi (15–23 m/​s) norðvest­an­lands seint í nótt og fram að há­degi á morg­un að sögn Veður­stofu Íslands sem hef­ur sent frá sér viðvör­un. „Skæðustu vind­streng­irn­ir verða þar sem suðvestan­átt­in stend­ur af fjöll­um og gætu þá trampólín átt erfitt með að halda kyrru fyr­ir,“ segir á vef Veðurstofunnar.  

Á vefnum segir að bæta muni í vind í kvöld og seint í nótt gæti orðið hvassviðri eða storm­ur á svæðinu frá Snæ­fellsnesi og norður og aust­ur í Eyja­fjörð. „Það er hæð fyr­ir aust­an land sem stýr­ir veðrinu hjá okk­ur þessa dag­ana og stend­ur hún það fast í lapp­irn­ar að lægðir þurfa að troða sér til norðurs milli Íslands og Græn­lands. Þrýstimun­ur er mik­ill yfir landið og því vinda­samt.

Loftið sem berst yfir landið er af suðlæg­um upp­runa og er hlýtt í grunn­inn, en ský og rign­ing halda aft­ur af hit­an­um nærri jörðu á sunn­an- og vest­an­verðu land­inu. Þar sem vind­ur stend­ur af landi er þurr­ara og bjart­ara og náði hiti í tæp 18 stig á Húsa­vík og Eg­ils­stöðum í gær. Lík­ur eru á að hiti muni rjúfa 20 stiga múr­inn í norðaust­ur­fjórðungi lands­ins ein­hvern næstu daga. 

Nýj­ustu spár gera ráð fyr­ir að vind­inn lægi smám sam­an á laug­ar­dag og að dag­ana þar á eft­ir taki við sval­ara og aðgerðarminna veður,“ seg­ir í hug­leiðing­um veður­fræðings­ins.

Fleiri fréttir