Varað við stormi í kvöld
Veðurstofan varar við stormi um norðvestanvert landið í kvöld. Spáin segir til um norðaustan 10-18 m/s og snjókomu í dag en í kvöld eykst vindhraðinn og verður norðan 18-25. Vægt frost, dregur úr vindi og kólnar á morgun.
Ökumenn er einnig hvattir til að vara sig á hálku, en samkvæmt upplýsingum á heimasíðu vegagerðarinnar er ýmist hálka eða krapi á vegum norðvesturlands.
Veðurhorfur næstu daga:
Á þriðjudag:
Norðan 13-18 m/s og snjókoma eða él, en þurrt S-til á landinu. Frost 1 til 10 stig, mildast syðst.
Á miðvikudag:
Norðvestan 8-13 og él við NA-ströndina, annars hægari og víða léttskýjað, en snjókoma vestast um kvöldið. Talsvert frost.
Á fimmtudag:
Breytileg átt og él á víð og dreif, einkum við ströndina. Áfram kalt í veðri.
Á föstudag:
Suðaustanátt og fer að snjóa S- og V-lands, en úrkomulítið á NA-verðu landinu. Minnkandi frost.