Varað við vatnsrásum og malbiksskemmdum
Í þeim sparnaðaraðgerðum sem hafa verið undanfarin ár hjá ríki og sveitarfélögum hefur viðhaldi vega ekki verið sinnt sem skildi. Víða er ástand þeirra mjög slæmt nú eftir veturinn. Vatnsrásir og malbiksskemmdir, bæði í þéttbýli og úti á þjóðvegum.
Í því mikla vatnsveðri sem hefur verið núna á suður- og vesturlandi eru þessar rásir meira og minna fullar af vatni. Töluverð hætta er á að ökumenn geti misst stjórn á bílum sínum ef þeir aka í þeim. Sérstaklega er hættan mikil ef ekið er á slitnum dekkjum. Kannanir VÍS sýna að það sé algengt, sér í lagi á tjónabílum sem koma inn til félagsins.
Við aðstæður sem þessar geta bílar flotið upp og ökumaður lítið ráðið við ökutækið. Mikilvægt er því að haga akstri miðað við aðstæður með því að forðast að aka í vatnsrásunum og draga úr hraða ökutækis. Eins sýna tillitsemi þegar ekið er framhjá gangandi, hjólandi og öðrum ökutækjum með því að ausa ekki vatni yfir viðkomandi.
/Fréttatilkynning frá VÍS