Varðskipið Þór til sýnis í Sauðárkrókshöfn
Þór, hið nýja varðskip Landhelgisgæslu Íslands, verður í heimsókn í Sauðárkrókshöfn á morgun, laugardaginn 18. ágúst. Gefst þá almenningi kostur á að fara um borð og skoða skipið á milli kl. 13 og 17 og eflaust margt spennandi að sjá í þessu glæsifleyi.
Til stóð að Þór færi til Grænlands en hætt var við þá ferð og kúrsinn tekinn á Skagafjörðinn en skipið hefur heimsótt þó nokkrar hafnir við Íslandsstrendur síðan það kom til landsins seint í október síðastliðnum.
Á heimasíðu Landhelgisgæslunnar segir: -Smíði varðskipsins Þórs hófst í október árið 2007 í Asmar skipasmíðastöð sjóhersins í Chile. Verkið gekk mjög vel og var kostnaður innan heildaráætlunar. Vegna jarðskjálftans í Chile sem varð í febrúar 2010 og flóðbylgjunnar sem reið yfir í kjölfarið varð seinkun á smíðaferlinu þar sem miklar skemmdir urðu á skipasmíðastöðinni en með einbeittum vilja og samstilltu átaki allra var skipið afhent þann 23. september 2011. Varðskipið Þór sigldi af stað til Íslands frá Chile 28. september og kom til fyrstu hafnar á Íslandi, Vestmannaeyja 26. október kl. 14:00. Skipið siglir inn í Reykjavíkurhöfn 27. október.
Varðskipið Þór er tákn um nýja tíma. Varðskipin Ægir og Týr hafa þjónað Íslendingum dyggilega í 40 ár en með komu Þórs er stigið nýtt skref í öryggismálum sjómanna og vöktun íslenska hafsvæðisins, hvort sem er á sviði auðlindagæslu, fiskveiðieftirlits, löggæslu, leitar eða björgunar.
Varðskipið er sérstaklega hannað með þarfir Íslendinga og framtíðaráskoranir á Norður Atlantshafi í huga. Skipið verður öflugur hlekkur í keðju björgunaraðila á Norður Atlantshafi og stóreykur möguleika Landhelgisgæslunnar á hafinu.-