Vatnsdæla á refli – fyrstu sporin

Undanfarin tvö ár hefur verið unnið markvisst að því að endurvekja Vatnsdæla sögu á nýjan hátt með því að segja söguna, á refli í líkingu við Bayeux refilinn sem saumaður var á 11. öld. Fyrsta sporið verður tekið á opnun refilsins þ. 16. júlí kl. 12:00 í Íþróttahúsinu á Blönduósi.

Refillinn verður rúmlega 45m á lengd og er hann úr hör en allt útsaumsgarn í hann er úr sérvaldri íslenskri lambsull. Bandið var spunnið og litað í Ístex.  Nemendur hönnunar- og grafíkdeildar Listaháskóla Íslands hönnuðu teikningarnar, undir stjórn Kristínar Rögnu Gunnarsdóttur listamanns og kennara.

Hugmyndina að verkefninu á Jóhanna E. Pálmadóttir á Akri og hefur hún, ásamt Landnámi Ingimundar gamla og Textílsetri Íslands, staðið að undirbúningi þess.

Markmiðið er að endurvekja og kenna refilsaum sem er talinn séríslenskur útsaumur. Fólki verður gefinn kostur á að setja spor sín í refilinn, námskeið verða haldin og þannig er verkefninu ætlað að efla menningartengda ferðaþjónustu í héraðinu. Hugsunin er að sem flestir taki þátt í verkefninu með því  að setja spor sitt í söguna okkar. Skemmtilegt er til þess að hugsa að allir Húnvetningar settu spor sitt í refilinn og flyttu þannig okkar gömlu sögu, Vatnsdælu, inn í framtíðina segir Jóhanna.

Á sunnudeginum verður reflinum komið fyrir í Kvennaskólanum á Blönduósi og verður opið alla daga til 15. ágúst, frá kl. 13:00-17:00. Gestum er gefinn kostur á að setja spor sitt í verkið gegn gjaldi og þar með í söguna sjálfa. Fyrsta klukkustundin kostar 2.000.- og þar eftir hver kl.st. 1.500.- Fær viðkomandi nafn sitt í bók sem fylgja mun reflinum.

Einnig er gefinn kostur á að borga umsjónarmanni fyrir að sauma fyrir sig og kostar hver klst. 5.000.- og nafn gefandans kemur líka í bókina góðu. Að öðru leyti er allur stuðningur vel þegin.

Móttaka hópa til sauma verður samkvæmt samkomulagi. Stefnt er að því að sumaropnun næsta ár hefjist 15. júní. 2012

Fleiri fréttir