Vatnshæðaraukning í Héraðsvötnum
feykir.is
Skagafjörður, Mannlíf
06.03.2026
kl. 11.57
Á Fecebook-síðu Skagafjarðar segir að Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra hefur borist upplýsingar frá Veðurstofu Íslands um að vatnshæð aukist í Héraðsvötnum og vatn sé að nálgast þjóðveginn. Krap og klaki er í ánni og spáð hlýindum í dag og úrkomu. Fólk á svæðinu er hvatt til að fylgjast vel með, þá sérstaklega bændur vegna búfjár sem gæti lent í sjálfheldu ef kemur til áframhaldandi vatnavaxta.
