Vatnsveitustyrkir fyrir lögbýli

Næstkomandi mánudag, þann 1. febrúar, opnar Matvælastofnun fyrir umsóknir um styrki vegna vatnsveitna á lögbýlum í samræmi við reglugerð um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til vatnsveitna á lögbýlum. Umsókn um styrk til vatnsveituframkvæmda (nr. 10.06) er í þjónustugátt MAST sem er aðgengileg á vef Matvælastofnunar. Umsækjandi skráir sig inn með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.

Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar næst komandi og verður umsóknarfrestur ekki framlengdur.

Eftirfarandi fylgigögn skulu fylgja með umsókninni:

  • Mat úttektaraðila á þörf býlis fyrir framkvæmd.
  • Staðfest kostnaðar- og framkvæmdaráætlun.
  • Teikningar sé um byggingar að ræða.
  • Umsögn viðkomandi sveitastjórnar um að skilyrði 1. mgr. 1. gr. ofangreindrar reglugerðar séu uppfyllt, þ.e. að hagkvæmara sé að mati sveitastjórnar að leggja vatnsveitu að einstökum bæjum, sbr. 2. mgr. 1. gr. laga um vatnsveitur sveitafélaga, nr. 32/2004.

Stuðningur fyrir hverja framkvæmd getur að hámarki numið 44% af stofnkostnaði við vatnsveitu til heimilis- og búsþarfa.

Vakin er athygli á því að þeir umsækjendur sem áttu samþykkta umsókn á síðastliðnu ári en luku ekki framkvæmdum þurfa að sækja um aftur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir