Vaxandi vindur þegar líður á daginn

Hálka eða hálkublettir eru á nokkrum leiðum á Norðvesturlandi en þjóðvegur 1 er að mestu auður. Þæfingur og skafrenningur er á Siglufjarðarvegi frá Ketilási í Siglufjörð. Austan 8-13 m/s er á Ströndum og Norðurlandi vestra, skýjað með köflum og úrkomulítið. Vaxandi vindur þegar líður á daginn.

Norðaustan 13-20 og snjókoma eða él í kvöld og nótt, hvassast á annesjum. Heldur hægari á morgun. Hiti um og undir frostmarki.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á miðvikudag:
Norðaustan 13-18 m/s NV-til, en 8-13 sunnan- og vestantil. Snjókoma fyrir norðan, slydda austanlands, en bjartviðri um landið suðvestanvert. Hiti um og undir frostmarki, en allt að 5 stiga hiti við suður- og austurströndina.

Á fimmtudag:
Norðaustan 10-20 m/s, hvassast um landið NV-vert. Slydda eða snjókoma á N-verðu landinu, en yfirleitt þurrt syðra. Hiti 0 til 5 stig, en kringum frostmark fyrir norðan.

Á föstudag:
Stíf norðlæg átt og snjókoma eða slydda, en þurrt að mestu sunnan- og suðvestanlands. Hiti um frostmark.

Á laugardag:
Norðaustlæg átt og skýjað með köflum, en dálítil él við norður- og austurströndina. Heldur kólnandi veður.

Á sunnudag:
Suðaustlæg átt. Slydda eða snjókoma sunnanlands, en stöku él fyrir norðan. Hiti um frostmark.

Á mánudag:
Útlit fyrir suðlæga átt með éljum í flestum landshlutum. Heldur kólnandi veður.

Fleiri fréttir