Vaxtarsamningur Norðurlands vestra endurnýjaður

Vaxtarsamningur Norðurlands vestra hefur verið endurnýjaður og gildir samningurinn árin 2011-2013. Bjarni Jónsson formaður SSNV og Katrín Júlíusdóttir Iðnaðarráðherra undirrituðu samninginn í Reykjavík þann 1. nóvember sl. og verður framlag Iðnaðarráðuneytisins 30 milljónir árlega á samningstímanum.

 

Á heimasíðu SSNV segir um Vaxtarsamninginn:

„Markmið samningsins er að efla nýsköpun og samkeppnishæfni atvinnulífsins á starfssvæði SSNV atvinnuþróunar og auka hagvöxt með virku samstarfi fyrirtækja, háskóla, sveitarfélaga og ríkisins. Áhersla skal vera á stærri og veigameiri samvinnuverkefni sem hafa það markmið að efla nýsköpun og þróun í atvinnulífi svæðisins.

Leiðir að þessu markmiði skulu m.a. vera:

  • ·         Efla samstarf fyrirtækja, háskóla og opinberra stofnana um þróun og nýsköpun í þágu                 atvinnulífsins.
  • ·         Þróa áfram og efla klasasamstarf vaxtargreina svæðisins og efla svæðisbundna                           sérþekkingu á vel skilgreindum styrkleikasviðum.
  • ·         Fjölga samkeppnishæfum fyrirtækjum og störfum og efla framboð á vörum og þjónustu.
  • ·         Stuðla að útflutningi vöru og þjónustu og gjaldeyrisskapandi starfsemi.
  • ·         Nýta möguleika sem skapast með aðild að alþjóðlegum verkefnum.
  • ·         Laða að alþjóðlega fjárfestingu og þekkingu.

Áhersla verður lögð á uppbyggingu klasa og framgang rannsókna og vöruþróunar á eftirfarandi sviðum:

  • ·         Ferðaþjónusta og menningartengd verkefni
  • ·         Auðlindalíftækni og uppbygging þekkingarsetra
  • ·         Matvæli
  • ·         Sameiginleg verkefni með öðrum vaxtarsamningum svo sem efling ferðaþjónustu á                       Norðurlandi.

Áherslur og markmið geta tekið breytingum vegna stefnumótunar og samþættingu áætlana á grundvelli Ísland 2020.“

 

Upplýsingar varðandi úthlutun og umsóknir verða aðgengilegar fljótlega og verða þær kynntar sérstaklega. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu SSNV.

 

Fleiri fréttir