Vaxtarsamningur úthlutar tæpum 19 milljónum
Vaxtarsamningur Norðurlands vestra hefur úthlutað styrkjum til níu verkefna að andvirði 18,9 milljónum króna. Úthlutun fór fram á fundi verkefnisstjórar þann 6. júní 2013. Eftirfarandi verkefni hlutu stuðning að þessu sinni:
Grettistak. Söguferðaþjónusta. Kr. 1.000.000.
Dýrakotsnammi. Dýravörur til Danmerkur. Kr. 2.170.333.
Ferðamálafélag V-Hún. Þróun ferðaþj. Húnaþ. vestra. Kr. 881.250.
Vesturfarasetrið á Hofsósi. Saga Brasilíufaranna. Kr. 3.000.000.
Ferðamálasamtök Norðl. vestra. Kr. 3.000.000.
Kanína ehf. Markaðssetning kanínukjöts. Kr. 2.380.000.
Byggðasaga Skagafjarðar. Byggðasafn Skagaf. Kr. 1.960.880.
BioPol. Nýting úrgangs rækju. Kr. 2.500.000.
Kjötafurðastöð KS. Sláturnám í heimabyggð. Kr. 2.000.000.
Ráðgert er að aftur verði auglýst eftir umsóknum í haust og verður það auglýst þegar nær dregur.