Veðrið að ganga niður

NNA hvassviðri sem gekk yfir Norðurland vestra í dag er nú að ganga niður og vindhraðinn víðast kominn niður í 10-15 metra á sekúndu, eftir að hafa farið um og yfir 20 metra fyrrihluta dags og slegið hátt í 30 metra í verstu vindkviðum í dag og sl. nótt.

Þverárfjall var lokað frameftir degi og fyrri ferð strætó frá Akureyri til Reykjavíkur féll niður. Ekki urðu nein stærri óhöpp í umferðinni, en mikil hálka var á vegum enda mikil hláka.

Fleiri fréttir