Veðrið einna verst í Húnaþingi vestra - „Hver aðstoðarbeiðnin á fætur annarri“

Veðrið á Ströndum og Norðurlandi vestra kl. 9:00 í dag, 5. janúar, skv. spá Veðurstofu Íslands. Mynd/Vedur.is
Veðrið á Ströndum og Norðurlandi vestra kl. 9:00 í dag, 5. janúar, skv. spá Veðurstofu Íslands. Mynd/Vedur.is

Ekkert ferðaveður var á Norðurlandi vestra í gærkvöldi, þá sérstaklega í Húnaþingi vestra. Ökumenn lentu í vandræðum og björgunarsveitir stóðu í ströngu, samkvæmt því sem segir á Facebook-síðu Lögreglunnar á NLV. Lögreglan beindi því til ökumanna að vera ekki á ferðinni. „Til að mynda tók það björgunarsveitarmenn á breyttri jeppabifreið tvær klukkustundir að aka frá Hvammstanga að Víðihlíð sem alla jafna er um 20 mínútna akstur,“ segir á síðunni. 

Á Facebook-síðu Húna kemur fram að það hafi verið í nógu að snúast hjá björgunarsveitarmönnum en eftir að óveðrið skall á leið ekki löng stund þar til fyrsta útkallið kom kl. 18:35. „Í framhaldinu kom hver aðstoðarbeiðnin á fætur annarri og voru okkar menn að til að verða 23:30 í kvöld, en þá var búið að koma öllum í skjól. Verkefnin voru vítt og breitt um Húnaþing vestra, alveg frá háheiði Holtavörðuheiðar og austur í Víðidal,“ segir á síðunni. 

Opnuð var fjöldahjálparstöð í Víðihlíð fyrir strandaglópa og þurftu lögreglu- og björgunarsveitamenn að hjálpa farþegum í bílum sátu fastir á Holtavörðuheiði og á láglendi. Á rúv.is segir að u.þ.b. 15 manns á tíu bílum hafi verið fluttir í Víðihlíð en það var Sigrún Herdís Sigurbjartsdóttir, sem býr í íbúð á efri hæð Víðihlíðar, stóð vaktina og tók á móti fólki. Þaðan var fólkið flutt að Ferðaþjónustunni Dæli það gisti í nótt.

Um tíma voru vegirnir um Vatnsskarð, Siglufjarðarveg og Öxnadalsheiði lokaðir. Nú í morgunsárið er snjóþekja og snjókoma á Norðurlandi vestra, ófært er á Þverárfjalli og Siglufjarðarvegi.

vegir

Í dag spáir Veðurstofa Íslands austan 18-25 m/s og talsverða snjókomu á Norðurlandi vestra, hvassast á annesjum. Snýst í sunnan 8-13 og rofar til eftir hádegi, en áfram norðaustan 18-23 og snjókoma á Ströndum fram á kvöld. Frost 0 til 5 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga: 

Á laugardag:

Norðaustlæg átt, víða 8-13 m/s og él, en 13-18 og snjókoma á Vestfjörðum. Frostlaust við sjávarsíðuna, en frost annars 0 til 5 stig. 

Á sunnudag:

Norðaustan 13-18 m/s og él, en úrkomulítið SV-lands. Heldur kólnandi veður. 

Á mánudag og þriðjudag:

Ákveðin norðaustlæg átt og dálítil él, en bjartviðri S- og V-lands. Harðnandi frost. 

Á miðvikudag:

Útlit fyrir hæglætisveður, bjart og talsvert frost um allt land. 

Á fimmtudag:

Suðaustanátt og dálítil él SV-lands, en annars hægviðri, léttskýjað og áfram kalt í veðri.

Fleiri fréttir