Veðurhamur í Húnaþingi vestra
Veðrið sem gekk yfir landið seinnipartinn í gær minnt aðeins á sig, m.a. í Húnaþing vestra, þar sem þak var farið að losna af íbúðarhúsi á Auðunarstöðum í Víðidal og kom björgunarsveitin Húnar þar til aðstoðar. Að sögn Gunnars Jakobssonar björgunarsveitarmanns var það eina hjálparbeiðnin sem sveitinni barst í gær.
Um 70 manns í rútu á leið frá Íslandsmótinu í blaki á Akureyri voru veðurtepptir við Víðigerði seinni partinn í gær. Beið hópurinn átekta þar en var kominn í Staðarskála um kvöldmatarleytið, þar sem átti að snæða kvöldverð og taka síðan ákvörðun um framhaldið, eins og sagt var frá á Vísi.is í gær.
Samkvæmt línuritum vindhraðamæla á vef Vegagerðarinnar hefur veðurhæðin á þjóðvegum á Norðurlandi vestra mest farið í um 40 metra í hviðum á Blönduósi, en þar var veðrið verst um kl 18 í gær. Á Vatnsskarði mældust um svipað leyti 26 m/s og um 37m/s í hviðum.