Vefráðstefna um stöðu og framtíð úrgangsmála á Norðurlandi
Vefráðstefna um stöðu og framtíð úrgangsmála á Norðurlandi verður haldin á miðvikudaginn kemur, 1. apríl, klukkan 13.00-16.30. Ráðstefnan er öllum opin og verður slóð á viðburðinn birt á viðburðasíðu ráðstefnunnar á Facebook og á Facbook síðum SSNV og SSNE
Ráðstefnan er lokahnykkurinn á störfum starfshóps Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra sem hafði til skoðunar framtíðarskipan úrgangsmála á Norðurlandi. Í vinnu hópsins var fjallað um úrgangsmál svæðiðsins og m.a. greindir úrgangsstraumar og tækifæri til að ná auknum árangri og hagræðingu í þessum viðamikla málaflokki.
Á ráðstefnunni verða haldin fjölmörg áhugaverð erindi, m.a. um niðurstöður greiningar á úrgangsmálum á Norðurlandi, útflutning á sorpi, afsetningu lífræns úrgangs, úrgangsstjórnun hjá fyrirtækjum, líforkuver, smartvæðingu sorps, hringrásarhagkerfið, sjónarhorn sveitarfélags og fyrirtækis sem hafa náð árangri í úrgangsmálum o. fl. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra mun opna ráðstefnuna.
Verkefnið er samstarfsverkefni Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra og er stutt af sóknaráætlunum beggja landshluta.
Dagskrá ráðstefnunnar má m.a. sjá í auglýsingu á vef SSNV.