Vegir að miklu leyti auðir á NLV

Á Norðurlandi eru vegir að miklu leyti auðir en þó er sumsstaðar hálkublettir eða krapi. Hálkublettir eru á Öxnadalsheiði. Sunnan 5-10 m/s og stöku smáskúrir eða él er á Ströndum og Norðurlandi vestra. Hæg sunnanátt á morgun og bjartviðri. Hiti 1 til 6 stig, en vægt frost í nótt.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á föstudag:

Hæg suðaustlæg eða breytileg átt og víða bjartviðri. Hiti 1 til 6 stig, en vægt frost í innsveitum NA-lands.

Á laugardag og sunnudag:

Hæg suðaustan- og austanátt og yfirleitt bjart í veðri, en 8-13 með S-ströndinni og súld af og til. Hiti 2 til 7 stig, en frystir allvíða að næturlagi, einkum í innsveitum.

Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag:

Suðaustan og austan 5-10 m/s með S- og V-ströndinni og lítilsháttar væta með köflum. Hæg suðlæg eða breytileg átt á N- og A-landi og léttskýjað. Hiti 3 til 10 stig að deginum.

Fleiri fréttir