Vegleg gjöf til Vallabóls

Kvenfélag Svínavatnshrepps færir leikskólanum Vallabóli veglega gjöf.
Kvenfélag Svínavatnshrepps færir leikskólanum Vallabóli veglega gjöf.

Konur í Kvenfélagi Svínavatnshrepps færðu leikskólanum Vallabóli í Húnavatnshreppi nýlega veglega gjöf en það var Hljóðasmiðja Lubba „Lubbi finnur málbein“, sem hjálpar íslenskum börnum að læra málhljóðin.

„[Þetta] er frábært námsefni til að hjálpa íslenskum börnum að læra málhljóðin og gott innlegg í þróunarverkefnið sem við fórum af stað með í haust ásamt öðrum leikskólum á Ströndum og í Vestur- og Austur Húnavatnssýslum. Þessar góðu konur hafa verið mjög rausnarlegar við okkur á Vallabóli í gegnum tíðina og fært okkur margar góðar gjafir sem hafa komið sér vel. Við viljum nota tækifærið og þakka þeim kærlega fyrir,“ segir á heimasíðu leikskólans.

 

 

Fleiri fréttir