Veiði hafin í súkkulaðibrúnni Blöndu
Veiðitímabilið í Blöndu hófst í morgun og voru veiðimenn mættir á slaginu klukkan 07:00, spenntir eftir veturinn. Því miður þá eru aðstæður í Blöndu eins og þær geta verstar orðið, miklar leysingar og vatnið súkkulaðibrúnt. Meira líkt því sem er á haustin. Veðrið hinsvegar skartar sínu besta og lofthiti um 20 gráður strax um klukkan 10.00, en þetta kemur fram í frétt frá Höskuldi B. Erlingssyni á húnahorninu.is.
Við aðstæður eins og þessar þarf að leita laxins á óhefðbundnum stöðum og vonast menn til þess að eitthvað veiðist. Lax var að sýna sig á Breiðunni, hvar hann stökk fallega fyrir veiðimenn. Nóg til þess að halda veiðimönnum á tánum vitandi að fiskur sé til staðar, skrifar Höskuldur.