Vel heppnuðu Landsmóti STÍ lokið
Landsmót Skotíþróttasambands Íslands í leirdúfuskotfimi (skeet) fór fram á Blönduósi um helgina en samkvæmt facebook-síðu Skotfélagsins Markviss var um vel heppnað mót að ræða.
Sigurvegari mótsins var Hákon Þór Svavarsson (SFS), í öðru sæti hafnaði Örn Valdimarsson (SR) og Ellert Aðalsteinsson í 3. sæti. Dagný H. Hinriksdóttir (SR) stóð uppi sem sigurvegari í kvennaflokki eftir harða keppni við Margréti Elfu Hjálmarsdóttur (SR).
Sigurður Unnar Hauksson (SKH) vann unglingaflokkinn og Davíð Ingason (SFS) sigraði Öldungaflokk. SR vann liðakeppnina, Markviss í öðru sæti og SIH í því þriðja.
„Okkar menn stóðu sig með ágætum, Brynjar skaut 96 og vann 2. flokk og hafnaði í 12. sæti á mótinu. Bergþór formaður skaut 105 og Guðmann skaut 104 og komust báðir í úrslit þar sem Bergþór hafnaði í 4. sæti eftir bráðabana við Ellert Aðalsteinsson SR og Guðmann í 5. sæti,“ segir loks á facebook-síðunni.
Hér eru niðurstöður mótsins: