Velferð dýra í öndvegi á vísindaþingi
Velferð dýra verður í sviðsljósinu á vísindaþingi landbúnaðarins, Landsýn, sem haldið er á Hvanneyri n.k. föstudag, 7. mars. Á málstofu um velferð dýra verða ný lög um dýravelferð kynnt og rætt um hvernig hægt er að mæla dýravelferð.
Þá verða kynntar niðurstöður rannsókna á munni hesta og útigangi, ástandi fjárhúsa og þróun og áhrif bóluefna. Málstofan hefst í Höfða kl. 10 og varir til kl. 15. Samhliða málstofu um velferð dýra verða haldnar málstofurnar: Ferðamál og dýr – Landbúnaðartengd ferðaþjónusta, Landlæsi og Skógrækt á rofnu landi.
Eftir klukkan 15, að málstofum loknum, verður veggspjaldasýning þar sem höfundar veggspjalda munu kynna efni þeirra og svara fyrirspurnum.
Skráning fer fram á heimasíðu Landbúnaðarháskólans www.lbhi.is undir fyrirsögninni Úr ýmsum áttum eða hér.
Að Landsýn standa Háskólinn á Hólum, Landbúnaðarháskóli Íslands, Landgræðsla ríkisins, Matvælastofnun, Skógrækt ríkisins og Veiðimálastofnun.