Vélhermar til FNV

Þann 24. febrúar s.l. urðu þáttaskil í uppbyggingu vélstjórnarbrautar Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, en þá fékk deildin vélherma til afnota.  FNV og Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum sameinuðust um að kaupa 24 vélherma frá UNITEST. 

Hermarnir eru af gerðinni Medium Speed Engine Room Simulator MED3D og CBT Engineering Marine Training Software.  Dr Leonard Tomczak kom af þessu tilefni til Sauðárkróks og hélt námskeið fyrir kennara FNV og FIV. Kennarar FNV og FIV eru mjög ánægðir með alla þá möguleika sem hermarnir bjóða upp á, ekki síst þrívíddar möguleikann. Ljóst er að hermarnir eiga eftir að breyta miklu í námi vélstjórnarnema.

/fnv.is

Fleiri fréttir