„Velkomin á Norðurland vestra“ - skemmtilegt kynningarmyndskeið um NLV
Textílsetur Íslands á Blönduósi hefur birt skemmtilegt kynningarmyndskeið á netinu um Norðurlandi vestra. Í myndskeiðinu er sagt stuttlega frá helstu atvinnugreinum svæðisins og hvað það er einna þekktast fyrir, s.s. ullarframleiðslu, menningu og listir og mikla náttúrufegurð.
Ólafur Bernódusson á Skagaströnd sér um kynninguna og fær til liðs með sér erlenda aðila til að æfa sig í að segja: „Velkomin á Norðurland vestra“. Þá bregður Magnús Örn Stefánsson einnig fyrir í myndskeiðinu. Samkvæmt facebook síðu Þekkingarsetursins er þetta fyrsta myndbandið af nokkrum sem munu verða birt á næstunni. Sjón er sögu ríkari.
The Region for Textiles, in Iceland. from Textilsetur Islands on Vimeo.