Vera hermannanna á svæðinu setti mikinn svip á mannlífið

Nýlega kom út bókin Hersetan á Ströndum og Norðurlandi vestra eftir Friðþór Eydal. Eins og nafnið gefur til kynna inniheldur bókin frásagnir og fróðleik af veru breskra og bandarískra hermanna á svæðinu á tímum seinni heimstyrjaldarinnar.
Friðþór hefur safnað saman miklum heimildum, munnlegum jafnt sem skrásettum, og bókina prýðir fjöldi mynda. Meðal annars er greint frá liðsveitum, dvalarstöðum, varnarviðbúnaði og öðrum umsvifum breska og síðar bandaríska herliðsins ásamt samskiptum þeirra við heimamenn, loftárásum og öðrum athyglisverðum atburðum.
Í Jólablaði Feykis er gripið niður í tvo bókarkafla sem varpa skemmtilegu ljósi að lífshætti hermanna og samskipti þeirra við heimamenn í Húnavatnssýslum. Þess má líka geta að lesið verður úr bókinni á Upplestri á aðventu í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi kl. 14 á sunnudaginn.