Verðbreytingar hjá SAH afurðum
SAH Afurðir á Blönduósi hafa gefið út nýjan verðlista á nautgripakjöti og hækkað verð til bænda. Hækkunin er eilítið misjöfn eftir flokkum en á verðlista sem gefinn er út af Landssambandi Kúabænda má sjá að sláturhúsin þrjú á Norðurlandi vestra greiða hæsta verð sláturleyfishafa á landinu á nautgripakjöti til bænda í flestum tilfellum.
Alls eru verð frá átta sláturleyfishöfum á listanum og eru sláturhúsin þrjú á Norðurlandi vestra: á Blönduósi, Hvammstanga og Sauðárkróki í átján tilfellum með hæsta verðið. Sláturhúsið á Hellu er í níu skipti með hæsta verðið, SS fjórum sinnum, Norðlenska og B. Jensen einu sinni en Sláturfélag Vopnfirðinga var í engu tilfelli með hæsta verðið til bænda.
HÉR er hægt að sjá verðlista sláturleyfishafa frá 26. júlí 2012
Og HÉR er hægt að sjá Verðlíkan LK frá 26. júlí 2012