Verði frumvarpið samþykkt geta 74 fyrirtæki af 124 ekki staðið við skuldbindingar sínar

Í umsögn Landsbankans um frumvarp til laga um veiðigjöld, 658. mál og frumvarp til laga um stjórn fiskveiða (heildarlög), 657. mál, koma fram miklar áhyggjur af þeim afleiðingum sem samþykkt frumvarpanna tveggja eins og þau liggja fyrir, hefðu fyrir íslenskan sjávarútveg og samfélag.

Í frumvarpi um veiðigjöld er lagt til að álagning sérstaks veiðigjalds verði mjög umfangsmikil og það fari upp í 70% á þremur árum. Útreikningar Landsbankans benda til þess að slík gjaldtaka muni ekki ganga upp í ljósi stöðu íslensks sjávarútvegs.

Sérfræðingar Landsbankans hafa lagt mat á áhrif frumvarpsins á rekstur og afkomu 124 sjávarútvegsfyrirtækja en alls eru aflaheimildir þessara fyrirtækja um 90% af heildarúthlutun aflaheimilda hér við land.

Af þeim 124 fyrirtækjum sem skoðuð voru, eru 74 fyrirtæki ekki talin geta staðið við núverandi skuldbindingar sínar verði frumvarpið um veiðigjöld samþykkt óbreytt. Fjöldi starfa hjá þessum 74 fyrirtækjum er um 4.000.

Að mati Landsbankans hefði samþykkt frumvarpsins áhrif á útgerð í öllum landshlutum. Áhrifin yrðu þó sérstaklega alvarleg á Reykjanesi, Vesturlandi, Vestfjörðum og á höfuðborgarsvæðinu. Ef horft er til einstakra flokka sjávarútvegsfyrirtækja yrðu áhrifin alvarlegust á bolfiskútgerð og því næst bolfiskútgerð/vinnslu.

Í umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða kemur fram það mat Landsbankans að fjölmargar greina þess muni hafa  óæskilegar afleiðingar fyrir sjávarútveg og efnahagslíf hér á landi og þar með stöðu bankans. Þessi atriði valdi því að rekstarumhverfi sjávarútvegs verði óstöðugra en nú er, rekstarforsendur veikist og fjármögnun verði erfiðari.

Útlit er fyrir að Landsbankinn muni þurfa að afskrifa um 31 milljarð króna af bókfærðu virði lána verði frumvarpið um veiðigjöld samþykkt í núverandi mynd. Verg niðurfærsla lána yrði mun hærri þar sem nú þegar hefur verð færð varúðarniðurfærsla fyrir hluta viðkomandi lána. Þá er áætlað að eiginfjárhlutfall bankans myndi lækka úr 21,4% í 19% verði frumvarpið samþykkt.

/Fréttatilkynning

 

Fleiri fréttir