Verðlaunahafar í Grunnskólanum austan Vatna - Íþróttamiðstöð á Hólum og á Hofsósi
Nemendur 8. - 10. bekkjar í Grunnskólanum austan Vatna tóku nýlega þátt í verkefni sem ber yfirheitið Landsbyggðarvinir. Verkefnið miðar að því nemendur leiti leiða til að efla og styrkja heimabyggð sína með því að leggja fram sínar eigin hugmyndir, tillögur til úrbóta, fylgja þeim eftir og framkvæma.
Tveir nemendur skólans hlutu þriðju verðlaun fyrir verkefni sín um Íþróttamiðstöð á Hólum og á Hofsósi; Inga Sara Eiríksdóttir í 9. bekk og Íris Lilja Jóhannsdóttir í 8. bekk. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í húsakynnum Háskólans í Reykjavík. Formaður dómnefndar var Steinunn Vala Sigfúsdóttir og Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, verndari Landsbyggðarvina afhenti verðlaunin.
Spennandi verður að fylgjast með seinni hluta verkefnisins en þá velja nemendur þær hugmyndir sem þykja helst framkvæmanlegar og útfæra nánar.
Texti: Vala Kristín Ófeigsdóttir.