Verkfallsaðgerðir hefjast kl. 12 á hádegi

16 félög Starfsgreinasambandsins hefja verkallsaðgerðir á hádegi í dag, fimmtudaginn 30. apríl, en þá munu um 10.000 manns leggja niður störf víðs vegar um landið. Innan starfsgreinasambandsins eru m.a. Aldan stéttarfélag í Skagafirði og Stéttarfélagið Samstaða á Blönduósi.

Þeir sem starfa hjá ríkisstofnunum (t.d. Heilbrigðisstofnun Norðurlands) eða sveitarfélagi eru ekki að fara í verkfall. Þessar aðgerðir snúa eingöngu að starfsfólki á almennum vinnumarkaði. Ef ríki eða sveitarfélag er launagreiðandi starfsmanns þýðir það að viðkomandi starfsmaður er ekki á leið í verkfall, sama hvaða starfi hann gegnir innan fyrirtækisins.

Skipulag verkfallsaðgerðanna sem framundan eru:

  • 30 apríl 2015 Allsherjar vinnustöðvun frá klukkan 12:00 á hádegi til miðnættis sama dag.
  • 6 maí 2015 Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 6. maí).
  • 7 maí 2015 Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 7. maí).
  • 19 maí 2015 Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 19. maí).
  • 20 maí 2015 Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 20. maí).
  • 26 maí 2015 Ótímabundin vinnustöðvun hefst á miðnætti aðfaranótt 26. maí 2015.

Þrjú hundruð króna lágmarkslaun

Á heimasíðu Starfsgreinasambandsins segir að lögð hefur verið fram ítarlega kröfugerð síðustu mánuði, bæði er varðar sérmál einstakra atvinnugreina og varðandi launaliðinn sérstaklega. Aðalkrafan er sú að laun taki krónutöluhækkunum og miðað sé við að lægsti taxti verði þrjú hundruð þúsund krónur innan þriggja ára – þ.e. að fólk geti lifað á dagvinnulaunum einum saman. Fram kemur að þessum kröfum hefur SA hefur verið hafnað og eru grundvöllur verkfallsaðgerða SGS. Aðrar launakröfur eru svohljóðandi:

  • Að laga launatöfluna þannig að fólk njóti þess að hafa unnið lengur eða sótt sér fræðslu og menntunar.
  • Að hækka laun sérstaklega í útflutningsgreinum.
  • Að vaktaálög verði endurskoðuð og fyrirtæki þurfi að uppfylla kröfur til að mega greiða eftir vaktaálagi en ekki dagvinnu og yfirvinnu.
  • Að desember- og orlofsuppbætur hækki.

Nánari upplýsingar um verkföll, hvenær þau eru áætluð, til hverra þau taka, kröfur SGS, undanþágur o.s.frv. má nálgast á verkfallsvef SGS . Einnig miðlar sambandið upplýsingum á facebooksíðunni „Vinnan mín“.

Fleiri fréttir