Verknám verður Hátæknimenntasetur
Fyrsta HAAS hátæknimenntasetur á Íslandi verður opnað 4. nóvember þegar Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra vígir eitt slíkt næstkomandi föstudag kl. 14:00. Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra hefur fjárfest í og uppfært tækjabúnað og þekkingu í því augnamiði að vera í fararbroddi menntastofnana við innleiðingu nýjustu CNC hátækni í iðnmenntun.
Í gegnum samstarf FNV, Iðnvéla og HAAS Automation, sem er leiðandi framleiðandi hagkvæmra hágæða CNC tækja, munu fyrirtæki hafa aðgang að mannafli með fulla þekkingu á þeirri háþróuðu tækni sem er notuð í iðnaði í dag.
Um er að ræða opnun á fyrsta hátæknimenntasetri í skóla á Íslandi. Nafni verknáms FNV verður breytt í Hátæknimenntasetur FNV til samræmis við hátæknimenntasetur erlendis (Haas Technical Education Centers). Í dag eru 52 skólar í Evrópu með hátæknimenntasetur og verður Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra fyrsti skólinn á Íslandi til að opna slíkt setur.
Alain Reynvoet framkvæmdastjóri HAAS í Evrópu og Bert Maes sem sér um HTEC prógrammið í Evrópu mun koma frá Brussel til að vera viðstaddir opnunarhátíðina og votta setrið.
/fnv.is