Verulegar fjárfestingar á árinu 2015

Frá Húnavöllum í Húnavatnshreppi. Mynd/KSE
Frá Húnavöllum í Húnavatnshreppi. Mynd/KSE

Ársreikningur Húnavatnshrepps fyrir árið 2015  var samþykktur eftir að hann var tekinn til seinni umræðu á fundi sveitarstjórnar þann 4. maí síðastliðinn. Í ársreikningi kemur fram að hagnaður sveitarfélagsins eftir fjármagnsliði var tæpar 14 milljónir og handbært fé tæpar 25 milljónir. Skuldahlutfall er 31 prósent. 

Samkvæmt fundargerð sveitarstjórnar þann 15. apríl, þegar ársreikningurinn var tekinn til fyrri umræðu, eru helstu niðurstöðutölur í ársreikningi eftirfarandi:

  • Tekjur A og B hluta samtals: 382.030.000 kr. 
  • Gjöld A og B hluta samtals: 366.851.000 kr. 
  • Hagnaður fyrir fjármagnsliði: 15.178.000 kr. 
  • Hagnaður eftir fjármagnsliði: 13.882.000 kr. 
  • Handbært fé frá rekstri: 24.893.000 kr. 
  • Skuldahlutfall: 31%

Á fundi sveitarstjórnar þann 4. maí samþykktu fulltrúar E-lista ársreikninginn en bókuðu jafnframt ábendingu um hve hátt hlutfall tekna komi frá Jöfnunarsjóði, eða 34,5%, og segja framlag sjóðsins ótryggar tekjur. Jafnframt völtu þeir athygli á mikla lækkun á handbæru fé sveitarfélagsins milli ára.

„Fulltrúar E-lista samþykkja ársreikning sveitarfélagsins en benda á hversu hátt hlutfall tekna sveitarfélagsins kemur frá Jöfnunarsjóði eða 34,5%, framlög Jöfnunarsjóðs hækka um 22 milljónir króna milli ára. Framlög Jöfnunarsjóðs eru ótryggar tekjur. Einnig benda fulltrúar E-lista á að handbært fé sveitarfélagsins hefur lækkað um 42 milljónir á milli ára, úr 127 milljónir í upphafi árs og niður í 85 milljónir í árslok 2015. Með þessu áframhaldi verður sjóðurinn fljótur að klárast,“ segir í bókuninni.  

Fulltrúar A-lista segja skýringuna fyrir lækkuninni á handbæru fé liggja í verulegum fjárfestingum og óhjákvæmilegum viðhaldsframkvæmdum sem fram fóru á árinu 2015. 

„Fulltrúar A-lista benda á eftirfarandi vegna lækkunar á handbæru fé. Fjárfestingar voru verulegar á árinu 2015. Ráðist var í viðhaldsframkvæmdir sem var óhjákvæmilegt að ráðast í og voru eiginfærðar fjárfestingar um 41 milljón á árinu. Engin ný lán voru tekin á árinu 2015 og eldri lán greidd niður. Einnig má benda á að útistandandi kröfur hafa hækkað töluvert á milli ára,“ segir í bókun fulltrúa A-lista. 

Ársreikningur ársins 2015 var samþykktur samhljóða.  

Fleiri fréttir