Vetrarsólstöðu gjörningur

Listamenn og starfsfólk í Nesi listamiðstöð ætlum að halda upp á vetrarsólstöður með gjörningi klukkan 18 í dag 21. desember fyrir utan listamiðstöðina að Fjörubraut 8 á Skagaströnd.

Austurísku listamennirnir Inge Jung, sjónlistakona og Josef Marhl, hljóð og sjónlistamaður munu setja upp innsetningu með 12 grímum, sem tákna mánuðina 12 í árinu. Tónlistin sem flutt verður á meðan er eftir Austuríska tónlistamanninn Josef Marschall.

Við munum á táknrænan hátt sleppa taki á fortíðinni og myrkinu á lengstu nótt ársins og bjóða velkomið hið nýja og bjartari daga.

Endilega komið og takið þátt með okkur. Boðið verður upp á austurískt jólaglögg og íslenskt heitt súkkulaði á eftir.

Fleiri fréttir